Skilalýsing (Lundur 5)


1. Frágangur innanhúss

1.1. Gólfefni

Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Flísar verða 30x60 cm. á gólfum á baðherbergi og þvottahúsi. Flísar á veggjum á baðherbergi verða 30x60 cm. eða sambærilegt.

1.2. Veggir

Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 7 eða sambærilegt.

1.3. Loft

Steypt loft eru slípuð, sandspörsluð og fínúðuð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2-4 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu þar sem við á.

1.4. Gler

Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum Samverk eða viðkomandi glerframleiðanda hverji sinni.

1.5. Sólbekkir

Sólbekkir frá Fanntófell eru plastlagðir með rúnnuðum framkanti þar sem við á.

1.6. Hurðir

Yfirfelld hurð EICS-30 inn í íbúðina. Innihurðir verða yfirfeldar og spónlagðar úr eik og fylgja fullfrágengnar. Hurðirnar eru frá Parka og framleiddar í Þýskalandi, eða sambærilegt.

1.7. Fataskápar

Fataskápar (fataherbergi þar sem við á og þá án hurða fyrir skáðum) eru í svefnherbergjum og forstofu. Innréttingar eru frá Brúnás ehf. og eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik.

1.8. Eldhús

Eldhúsinnrétting frá Brúnás ehf. er að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir eru spónlagðar með eik með hvítum efri skápum og plastlagðri borðplötu með beinum kanti, ásamt vaski og blöndunartækjum frá Tengi. Einnig fylgir AEG spanhelluborð, ofn með blæstri, 900w örbylgjuofn ásamt gufugleypi með kolasíu og uppþvottavél frá Bræðrunum Ormsson ehf. Flísar vera á milli skápa í eldhúsi þar sem við á.

1.9. Baðherbergi

Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir í rúmlega tveggja metra hæð. Innréttingar eru að innan úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir spónlagðar með eik eða sprautulakkað hvít. Á baðherbergi er uppsettur spegill, handlaug í innréttingu, handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Blöndunartæki frá Tengi eru við handlaug og sturtu.

1.10. Þvottahús

Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás ehf. úr ljósgráum plasthúðuðum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki á vegg eða borði. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara.

1.11. Sérgeymsla

Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Sérgeymslur eru án innréttinga með hvítmálaðri yfirfelldri hurð þar sem við á. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.

1.12. Timburverandir

Timburverandir fylgja íbúðum á jarðhæð þar sem við á.

1.13. Hitakerfi

Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Góflhita er stýrt með þráðlausum hitanemum á vegg rýmis. Ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.

1.14. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir

Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.

1.15. Rafmagns- og sjónvarpslagnir

Rafmangs- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstenglar eru í alrými og herbergjum. Símatengill er í alrými og herbergjum.


2. Frágangur sameignar

2.1. Anddyri og stigahús

Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum í neyðarstigahúsi eru uppset handrið, gólf og veggir máluð án spörslunar. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.

2.2. Hurðir

Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðalhurð er úr áli. Innri anddyrishurð er úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur eru með rafmagnsopnun.

2.3. Lyftur

Fólkslyftur eru af gerðinni KONE eða sambærilegt og eru tilbúnar til notkunar í stigahúsum.

2.4. Lokað bílageymsluhús

Bílgeymsla er niðurgrafin að hluta með Troldtekt-plötum og/eða einangrun í lofti þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru ýmist pússaðir, hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði.

2.5. Hjóla- og vagnageymslur

Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.

2.6. Sorp og sorpgeymslur

Veggir eru með múrfiltun og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.


3. Frágangur utanhúss

3.1. Klæðning og einangrun

Húsið er einangrað með steinull og álklætt að mestu að utan. Svalagangar og einstaka fletir eru timburklæddir. Kjallaraveggir og fleira eru,múraðir á einagrun, múrfiltun og málaðir eftir því sem við á.

3.2. Þak

Þak yfir 11.hæð er létt sperruþak með tvöföldum eldsoðnum tjörupappa.

3.3. Svalir á þakíbúðum

Svalir eru steyptar með vatnshalla að niðurföllum. Ofan á steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa, timburlektur og rakaþolin þrýstieinangrun. Svalagólf er klætt með furuboðrum.

3.4. Svalir

Svalagólf eru steypt og slípuð með tilburstilum. Svalahandrið og svalaskýli eru úr áli og gleri frá Gler og Brautum eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru steypt slípuð grunnuð og máluð.

3.5. Gluggar

Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Berki. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.

3.6. Lóð

Lóð er fullfrágengin með grasþökum og gróðri samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi eru hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og í römpum samkvæmt teikningu. Bílastæði og rampar eru steyptir og eða malbikaðir eftir því sem við á. Allur lóðarfrágangur við húsið getur ekki endurspeglað að fullu teikningar lóðarhönnuða né samþykktar byggingarnefndateikningar arkitekts s.s gras, gróður, palla við íbúðir og allan annan frágang. Endanlegt útlit og allur frágangur lóðarinnar sem og aðlögun að næsta götum,byggingum og lóðarmörkum verður samkvæmt ákvörðun verkefnastjóra og skrúðgarðyrkjumeistara Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hverju sinni.


4. Hönnuðir

Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar).
Verkfræðihönnun: VSB.
Raflagnahönnun: VSB.


5. Byggingaraðili

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is

Athygli skal vakin á því að Byggingarfélag Gylfa og Gunnars áskilur sér allan rétt til að gera útlits,efnis- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur.


6. Afhendingartími

Íbúðir verða afhentar á tímabilinu maí-júní 2017 Sameign að utan og lóð verða afhent haustið 2017. Bílgeymsla verður afhent í maí 2017.

Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda geta haft áhrif á afhendingartíma til seinkunnar.


7. Til áréttingar

ALLAR BREYTINGAR Á ÍBÚÐINNI SJÁLFRI OG EINSTAKA HLUTUM Í HENNI, AÐ ÓSK KAUPENDA, GETA HAFT ÁHRIF Á AFHENDINGARTÍMA TIL SEINKUNNAR.

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. www.bygg.is